Kæru deildir
Það tilkynnist hér með að Alanó klúbburinn mun flytja frá núverandi húsnæði að Borgartúni 6 í nýtt og stærra húsnæði að Héðinsgötu 1-3 þann 1. september næstkomandi.
Ástæður flutninganna eru fyrst og fremst að núverandi húsnæði er orðið of lítið auk þess sem það leiguverð er of hátt. Þá ætti öllum fundargestum að vera ljóst að loftræsting í Borgartúninu stendur ekki undir þeirri starfsemi sem þar fer fram ásamt fleiri vanköntum sem eru á húsnæðinu og ekki er hægt að laga.
Nýja húsnæðið að Héðinsgötu er mun stærra en núverandi húsnæði og þar verða opnanlegir gluggar í öllum sölum. Þá getum við boðið upp á stærri og fleiri sali en nú eru í boði þannig að rúmt verður um allar deildir sem í daga halda fundi sína í Alanó klúbbnum.
Verið er að vinna við skipulag og breytingar á húsnæðinu að Héðinsgötu og munum við senda frekari upplýsingar til deildanna eftir því sem nær dregur, svo sem hvert leiguverð verður. Það er hinsvegar ljóst að leigan til deildanna mun lækka.
Við viljum biðja ykkur um að beina öllum spurningum varðandi nýja húsnæðið til stjórnar í gegnum alano@alano.is.
Að lokum þá viljum við biðja ykkur um að lesa upp tilkynningu á hverjum fundi fram að flutningum um að klúbburinn muni flytja starfsemi sína á Héðinsgötu 1-3 þann 1. september.
Bestu kveðjur,
Stjórn Alanó
Aðalfundur Alanó klúbbsins
Aðalfundur Alanó klúbbsins verður haldinn laugardaginn 10. apríl kl.14:00 hér í félagsmiðstöðinni. Það er mikill bati í starfinu en eins og við vitum þá megum við aldrei hætta. Við hvetjum alla til að koma og taka þátt í skemmtilegu og uppbyggilegu starfi.
Árshátið Alanó klúbbsins 2010
Árshátið Alanó laugardaginn 16 janúar
Stangarhyl 3, sal Samhjálpar
Frábær skemmtiatriði
Hlaðborð
Bati leikur fyrir dansi
Upplýsingar og miðasala:
Skrifstofa Alanó
Solla 770 6688
Sigurjón 772 1023 eða 692 7999
Haustfagnaður Alanó klúbbsins 3. október
Haustfagnaður Alanó klúbbsins verður þann 3. október.
Nú er þegar farið er að kólna úti og haustið gengið í garð er komið að því að gera snyrtilegt og hlýlegt í kringum sig.
Laugardaginn 3. október ætlum við í Alanó klúbbnum að hittast hér í húsinu á milli klukkan 14-16 til þess að taka til og þrífa í húsinu okkar! Við skorum á alla að mæta og taka þátt í að halda húsinu okkar fínu. Margar hendur vinna létt verk.
Seinna um kvöldið eða strax eftir Flórídafund kl. 22 hefst síðan skemmtikvöld þar sem landsþekktir skemmtikraftar munu halda uppi stuðinu fram á nótt. Mættu og láttu þitt ekki eftir liggja í gleðinni.
Hlökkum til að sjá þig!
Stjórn ALANÓ
Ný vefsíða
Nú heimasíða Alanó félagsmiðstöðvarinnar er komin í loftið.