Mynd: Alanó klúbburinn

Tilgangur félagsins er eingöngu að efla 12 spora starf í landinu

 

Húsnæði Alanó klúbbsins flutt.

Við erum flutt!

Alanó klúbburinn er fluttur í Holtagarða, Holtavegi 10, 2. hæð. 104 Reykjavík.

Verið velkomin á nýja staðinn okkar.

Aðalfundarboð

Aðalfundur Alanó klúbbsins, líknarfélags verður haldinn í Sal 1, 12 Sporahúsinu Holtavegi 10 Reykjavík, þann 15. apríl 2021 klukkan 18:00. Fundurinn er opinn öllum félagsmönnum.

Dagskrá:
Fundarstjóri valinn
1.   Skýrsla stjórnar
2.   Ársreikningur
3.   Kosningar í varastjórn
4.   Breytingar á lögum félagsins/Kosningar
5.   Önnur mál

Úr 5. grein laga félagsins
Félagsmenn teljast þeir sem standa skil á félagsgjöldum og öðlast þannig kjörgengi og kosningarétt á aðalfundi félagsins.

Önnur mál

Félagsmönnum er bent á að öll mál sem félagsmenn óska að séu sett á dagskrá aðalfundar undir liðnum „Önnur mál“ verða að hafa borist stjórn félagsins skriflega á netfangið 12sporahusid@12sporahusid.is fyrir 8.apríl 2021.

Stjórn Alanó klúbbsins, líknarfélags.